| Gisli's profileWorld TourPhotosBlogLists | Help |
|
December 25 21st, 22nd, 23rd, 24th and the 25th of December (English).Hello everyone. Been a few days since we blogged. Our days fly by here in beautiful Kenya. On the 21st we decided to go out to Giraffe Park and pet the giraffes and feed them. The kids had a ball feeding them and even put the food in their mouths so that the giraffes would lick it out of their mouths ;O) After kissing the giraffes we were off to Nairobi national park for a safari walk. This was like a zoo, but still a bit more “wild”. The surrounding was of course real Africa ;o) There the kids and the parents managed to go in with a care taker to pet the Cheetah that was there. This was a bit scary and a lot of fun. Gisli went in first with the boys and Teddy and he took millions of pictures and video. Then I went in with Chaz and Katla and well since the mom was a bit nervous around the cheetah she did not take but 4 pictures while the caretaker took a video ;O) This was something the kids will not forget about this trip. They were so excited to have petted the wild animal! On the 22nd we were off to visit Star of Hope, the school program in one of the slums of Nairobi (Mathare). There we also visited the boy that Gisli´s mom sponsors and also the girl that my mom sponsors. They brought along gifts for them and got to know them a little bit while we visited their one room “apartment”. After visiting them we went to visit Brenda (who we sponsor). She also lives in by the slums. The last time me and Gisli visited her she had asked if we could give her a radio for Christmas! So the night before we had stopped at the store to buy one for her ;O) she was soooo happy with it. Chaz talked with her for a while and really enjoyed to get to know her. After that visit we were off to see the “real” slums. There people live in shacks. We had 4 security guys with us along with our great friend George and Thorunn (who work for ABC). This was a real experience for the kids. They walked in the sewer and on the “flying toilet” area. Of course there were a lot of pictures and video taken. Well we came home around dinner time and cooked and were gone early to bed. On the 23rd we did our Christmas shopping!! The parents got a small gift for the kids and we got the food we needed. On the 24th we woke up early and were off by 10 am to go to a water park and some mini golf ;O) what a fun Christmas this was ;O) we were splashing and playing until 4 in the afternoon. After driving home we then got ourselves ready to go out for dinner. We had a reservation at Carnivore (www.tamarind.co.ke/carnivore). There we had a wonderful Christmas dinner were we ate crocodile, ostrich, beef, turkey exe. The restaurant was all decorated and a choir came to sing Christmas carols. After dinner we went home to open presents. This time the kids only got one mutual from the parents (toys for the pool) and a gift from USA (Grandma and grandpa) along with a gift from our friends (Lilja and Gummi). They really enjoyed the presents more than usual I think since they were few ;0) Today on the 25th the kids woke up early to go to the pool and play with their new toys ;O) I slept until 10 while Gisli went outside with them. After that we were off to spend the rest of the day with the children at the ABC house!! Well I got something on paper. Merry Christmas everyone!! 21, 22, 23, 24 og 25 des. (íslenska) Hæ allir, jæja nú eru liðnir nokkrir dagar frá því að við blogguðum. Tíminn flýgur svo sannarlega hér í Kenía. Þann 21 des. Fórum við í Gírafa garðinn rétt fyrir utan Nairobi og fengum þar að gefa nokkrum gíröffum að borða og að klappa þeim. Krakkarnir skemmtu sér vel við þetta og létu matinn líka upp í sig svo að gírafarnir gætu sleikt hann úr munninum þeirra, eða eins og strákarnir sögðu, þá fóru þeir í sleik við gírafa…hahhaha. Eftir gírafa garðinn fórum við svo í Þjóðgarð Nairobi og fórum þar í svokallað safarí göngu. Við skoðuðum fjölda af dýrum þar og var þetta eins og dýragarður nema aðeins „villtari“. Þar fengu krakkarnir að klappa blettatígur alveg óvænt þar sem við rákumst á manninn sem sér um hann. Við fórum semsagt inn á svæðið hans í tveimur hópum, fyrst fór Gísli með strákana og Teddy og tók fullt af myndum og vídeó. Því næst fór ég inn með Kötlu og Chaz og var nú aðeins stressaðari en pabbinn ;O) ég tók því aðeins 4 myndir á meðan þau klöppuðu og maðurinn sem sá um tígurinn tók vídeó fyrir mig! Krakkarnir voru himinlyfandi eftir að fá að upplifa þetta ;O) Þann 22 des. Fórum við svo í heimsókn í dagskólann Star of Hope. Þessi skóli er fyrir börnin sem búa í slömminu í Nairobi (Mathare). Þar heimsóttum við bæði strákinn sem Jóhann er að styrkja og stelpuna sem mamma er að styrkja. Ömmurnar gáfu þeim gjafir og fengu að fara í heimsókn á heimili þeirra og hitta mömmur og ömmur þeirra. Þessi börn búa öll í eins herbergja íbúðum sem eru um 12 fm að stærð. Eftir að hafa heimsótt þau fórum við svo í heimsókn til Brendu (sem við fjölskyldan styrkjum). Hún býr einnig í 12 fm íbúð með systir sinni, bróður, móður og systurdóttir. Síðast þegar ég og Gísli hittum hana spurði hún okkur fallega hvort hún gæti fengið útvarp í jólagjöf. Við að sjálfsögðu komum við í búð daginn áður og redduðum einu slíku. Hún var ofur ánægð með þessa gjöf. Chaz talaði heilmikið við hana og hafði gaman af því að kynnast henni aðeins. Eftir að hafa heimsótt þessi börn fórum við inn í alvöru slömmið. En þar býr fólk í bárujárns kofum (semsagt allar hliðar eingöngu bárujárn). Við vorum með 4 „lífverði“ með okkur sem eru vel virtir í þessu hverfi. George og Þórunn voru einnig með okkur (vinna bæði hjá ABC). Þetta var nú aldeilis reynsla fyrir börnin. Það eru ekki margir sem fá né þora að fara þarna inn. Við gengum á milli kofanna, vaðandi í klóaki og fórum einnig þar sem fólk hendir „fljúgandi klósettunum“. Auðvita voru teknar fullt af myndum og einnig vídeó. Við vorum komin heim um kvöldmatarleitið og krakkarnir sofnuðu snemma eftir þessa reynslu miklu ferð. Þann 23 fórum við í smá verslunar leiðangur. Fórum í mollið og á kaffihús og bara dekruðum við okkur. Einnig keyptu foreldrarnir smá jólagjöf fyrir krakkana o.s.frv. Þann 24 vöknuðu foreldrarnir og krakkarnir snemma þar sem förinni var heitið í vatnagarð og míní gólf. Þetta var semsagt mjög öðruvísi aðfangadagur þar sem við skoppuðum á milli rennibrauta og sóluðum okkur til klukkan 4 um daginn. Um kvöldið fórum við svo á veitingarstað sem heitir Carnivore (www.tamarid.co.ke/carnivore). Þar var búið að skreyta allt og við komumst strax í jólastuð eftir að við vorum sest niður. Þar kom einnig kór og söng jólalög á meðan við borðuðum krókódíl, strút, kalkún, naut o.s.frv. Við vorum svo komin heim um 10 leitið og opnuðu þá krakkarnir pakkana sem þau áttu frá Ameríkunni ásamt pakka frá foreldrunum (dót í sundlaugina) og Gumma og Lilju (Trivial pursuit). Þau skemmtu sér konunglega með þessar 3 gjafir sem þau fengu og virtust njóta þess betur að hafa þær svona fáar ;o) Í dag vöknuðu krakkarnir svo snemma til að fara út að leika með dótið í sundlaugina. Ég fékk að sofa út á meðan Gísli fór út með þeim. Eftir það fórum við svo í stutta heimsókn á ABC heimilið þar sem krakkarnir okkar léku sér við krakkana þar! Jæja þá er komið eithvað á blað ;O) Gleðileg jól öll sömul! TrackbacksThe trackback URL for this entry is: http://gislio.spaces.live.com/blog/cns!6E19B1D9F0A8E0B1!4134.trak Weblogs that reference this entry
|
|
|